Svalir, tröppur niður í garð o.fl.
Sólvallagata 5A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 618
27. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir úr heitgalvanhúðuðu stáli með gólfi og þrepum úr harðviði, opna dyr að svölum og breyta glugga eins og gert verður á hinum hluta tvíbýlishússins á lóð nr. 5A við Sólvallagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 15. desember 2016 til og með 17. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Umsögn Minjastofnunar dags. 28.11.2016 fylgir erindi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016. Meðfylgjandi er umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.10. 2016. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101247 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019403