Einbýlishús með aukaíbúð
Döllugata 6, 8 og 10
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júní 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. júní 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með auka íbúð og innbyggðum bílskúr úr CLT krosslímdum timbureiningum á staðsteyptum grunni á lóð nr. 6 við Döllugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2019.
Stærðir: A-rými: 344.4 ferm., 1.431.0 rúmm. B-rými: 0.0 ferm. Nýtingarhlutfall: 0.50 Erindi fylgir greinargerð lóðarhafa dags. 4. júní 2019, minnisblað verkfræðistofunnar S.Saga ehf. dags. 22. maí 2019, samþykki aðliggjandi lóðarhafa Döllugötu, 4 og 8 og Gissurargötu 3, vottun CLT- eininga dags 1. okt. 2015 auk tækniblaða, lóðablað 5.113.7 dags. 21. febrúar 2008 og hæðablað Reynisvatnsás, Döllugata 2-10 og Gissurargata 1-7 dags. 11. mars 2008.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2019.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214846 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101611