Einbýlishús með aukaíbúð
Döllugata 6, 8 og 10
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 607
28. október, 2016
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. október 2016 var lögð fram fyrirspurn Rósu Guðlaugar Kristjánsdóttur og Páls Hrannars Hermannssonar, mótt. 5. október 2016, um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 6, 8 og 10 við Döllugötu sem felst í að heimilt verði að byggja einnar hæða hús á lóðunum í stað tveggja hæða. Jafnframt er spurt hvort breyta megi Döllugötu 8 og 10 í parhúsalóð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2016.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. dags. 28. október 2016.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214846 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101611