Breytingar - kjallari fjarlægður, skipt upp í rými, svalir o.fl.
Gylfaflöt 10-12
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 673
16. mars, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. mars 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að stækka nýlega samþykkt erindi BN05347 þannig að settur verður kjallari undir bygginguna á lóð nr. 10-12 við Gylfaflöt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2018.
Nýr varmatapsútreikningur dags. 27. febrúar 2018 fylgir erindi.
Stækkun vegna kjallara er: 1.258,2 ferm., XX rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2018 samþykkt.