Breytingar - kjallari fjarlægður, skipt upp í rými, svalir o.fl.
Gylfaflöt 10-12
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN053470, þannig að hætt er við kjallara undir byggingunni, rýmum fjölgað úr sjö í átta, gluggum og hurðum breytt og gerðar svalir á húsið á lóð nr. 10-12 við Gylfaflöt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. nóvember 2019.
Minnkun, þar sem hætt er við kjallara: XX ferm., XX rúmm.
Yfirlýsing um CE-merkingar á steinullareiningum frá Límtré Vírnet hf dags. 12. maí 2017 og varmatapsrammi dags. 30. október 2019 fylgir.
Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. nóvember 2019.