nýtt deiliskipulag
Rauðhólar
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 600
9. september, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. ágúst 2016 var lögð fram umsókn Guðrúnar Oddsdóttur fh. Reiðveganefndar Fáks, mótt. 23. ágúst 2016, um framkvæmdaleyfi vegna lagfæringar á reiðstíg frá Bugðu í gegnum Rauðhóla. Einnig er lögð fram greinargerð Guðrúnar Oddsdóttur, dags. 23. ágúst 2016. Jafnframt er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 30. ágúst 2016 og tölvupóstur Umhverfisstofnunar, dags. 26. ágúst 2016. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.2. september 2016.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.2. september 2016. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 5.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.