Hækkun húss, kvistur, svalir o.fl.
Vesturbrún 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 669
16. febrúar, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og stækka kvist á vesturhlið ásamt því að byggja nýjar svalir á 2. hæð á suðurgafli í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Vesturbrún.
Útskrift úr gerðabók embættis afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. ágúst 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. ágúst 2016. Samþykki eigenda dags. 20.06.2016 fylgir erindi. Stækkun: 5,0 ferm., 30,6 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Vesturbrún 6 og 10 og Kleifarvegi 5,7 og 9.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016..