breyting á deiliskipulagi
Smiðjustígur 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 629
28. apríl, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lögð fram umsókn Davíðs Pitt, dags. 14. mars 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóða nr. 10 við Smiðjustíg og 16 við Klapparstíg skv. uppdrætti, dags. 20. febrúar 2017. Húsbyggingar og lóðir við Smiðjustíg 10 og Klapparstíg 16 á reitnum eru í eigu sama aðila sem óskar nú eftir að byggingarreitur minnki á lóð Smiðjustigur 10 og stækki á lóð Klapparstígur 16. Hluti af samþykktu byggingarmagni á lóð Smiðjustíg 10 flyst yfir á lóðina að Klapparstíg 16. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að húsbygging á lóð Smiðjustígur 10 verði rifin. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 10. mars 2017 ásamt áliti Minjastofnunar Íslands, dags. 31. ágúst 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101015 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018512