39-41 - Breyta kvisti
Akurgerði 39
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 595
28. júlí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram að nýju erindi af fundi byggingarfulltrúa dags. 19. júlí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að lengja og breikka kvist á norðurhlið, til að breikka áður samþykkt sólskýli um 1,3 metra og að lokum er sótt um leyfi til að breyta þaki bílskúrs við parhús á lóð nr. 39-41 við Akurgerði.
Einnig eru lagðir fram breyttir uppdrættir dags. 12. júlí 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2016. Stækkun húss nr. 39: 6,1 ferm., 12,4 rúmm. Hús nr. 41: 6,1 ferm., 12,4 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júlí 2016 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Akurgerði 31, 33, 35, 37 og Grundargerði 2, 4, 6, 7 og 8. Uppdrættir sem lagðir voru fram og samþykkt að grenndarkynna eru ekki réttir. Breyttir uppdrættir, dags. 12. júlí 2016, eru nú lagðir fram og verða grenndarkynntir í samræmi við ákvörðun frá 15. júlí 2016.
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gr. 8.1 í Gjaldskrá
vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006433