Endurnýja hús og fjölga íbúðum
Óðinsgata 19
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 855
4. febrúar, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2022 þar sem sótt erum leyfi til að gera upp núverandi hús og bæta við einni íbúð á 1. hæð þannig að 3 íbúðir verða í húsinu, tvær íbúðir á fyrstu hæð, ein íbúð á annarri auk þess verður gerður nýr kjallari undir hluta húss á lóð nr. 19 við Óðinsgötu.
Stækkun er: 90,3 ferm., 382,1 rúmm. Erindi fylgir afrit af teikningu samþykkt 12. febrúar 1927. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. september 2019, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 7. júní 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. desember 2021. Erindi fylgir greinargerð brunahönnuðar dags. 30. nóvember 2021 og afrit af umsagnarblaði erindis með upplýsingum frá hönnuði ódagsett. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. janúar 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. janúar 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2022. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102121 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024372