Endurnýja hús og fjölga íbúðum
Óðinsgata 19
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2022 þar sem sótt erum leyfi til að gera upp núverandi hús og bæta við einni íbúð á 1. hæð þannig að 3 íbúðir verða í húsinu, tvær íbúðir á fyrstu hæð, ein íbúð á annarri auk þess verður gerður nýr kjallari undir hluta húss á lóð nr. 19 við Óðinsgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 21. mars 2022 til og með 25. apríl 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir og Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir dags. 24. apríl 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. maí 2022 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. maí 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. maí 2022 sbr. a. lið 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102121 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024372