Rífa sambyggða bílskúra
Safamýri 41
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 848
3. desember, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að rífa sambyggða bílskúra og byggja sambyggða bílskúra í samræmi við gildandi deiliskipulag við lóðarmörk lóðar nr. 43, á lóð nr. 41 við Safamýri. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: 52,6 ferm., 74,0 rúmm. Erindi fylgir ástandsskýrsla, dags. 30. ágúst 2015, samþykki hagsmunaaðila dags. 7. júlí 2021. Gjald: 12.100
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103690 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014306