Útitröppur, svalir, breyting inni
Básendi 5
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 596
4. ágúst, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. júlí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að breyta aðalinngangi og útitröppum og loka rými undir tröppum, ásamt því að gera svalir á suðurhlið með tröppum niður í garð við einbýlishúsið á lóð nr. 5 við Básenda. Ennfremur er sótt um leyfi til að breyta burðarveggjum innandyra. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. júlí 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2016.
Stækkun A-rými 7,7 ferm., 16,4 rúmm. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 14. júní 2016. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Básenda 3, 6, 7, 8 og 10.
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gr. 8.1 í Gjaldskrá
vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108400 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006896