breyting á deiliskipulagi
Lambhagavegur 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 639
30. júní, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 24. ágúst 2016, um breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegur-Hallar vegna Lambhagavegar 12 og 14. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að fyrirkomulagi byggingareita á lóðum 12 og 14 við Lambhagaveg er breytt og heimilt byggingarmagn minnkað og nýtingarhlutfall því samhliða. Jafnframt er lóð spennistöðvar færð innan skipulagssvæðis og innkeyrslur á lóðir færðar, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf., dags. 26. apríl 2017. Tillagan var auglýst frá 16. maí 2017 til og með 27. júní 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

112 Reykjavík
Landnúmer: 228029 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129447