Endurnýja þak og byggja tvo kvisti
Ásvallagata 27
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 617
19. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti samhliða endurnýjun á þaki, ásamt veggsvölum á bakhlið á 1. og 2. hæð og rishæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 27 við Ásvallagötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2016. Erindi var grenndarkynnt frá 6. desember 2016 til og með 9. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun A-rými x ferm. x rúmm. B-rými x ferm. og x rúmm. C-rými. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101263 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007343