Bílskúr - Nýtt erindi. (SBR. BN052183
Drápuhlíð 38
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á vesturhlið húss, saga niður úr glugga á vesturhlið íbúðar 0101, koma fyrir hurð og stálbrú út á bílskúr og tröppur frá bílskúrsþaki niður á lóð fjölbýlishúss nr. 38 við Drápuhlíð.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa SN160442 dags. 10. júní 2016. Stærð bílskúr: 28,0 ferm., 88,2 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Drápuhlíð 35, 36, 37, 39 og 40 og Blönduhlíð 25, 26 og 29
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107218 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009254