(fsp) breyting á deiliskipulagi
Fossaleynir 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 711
11. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Ragnheiðar Sverrisdóttur dags. 7. desember 2018 um breytingu á deiliskipulagi Fossaleynismýri vegna lóðarinnar nr. 16 við Fossaleynir sem felst í hækkun á nýtingarhlutfalli. Einnig er lagður fram uppdr. Eyjólfs Bragasonar dags. 7. desember 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2019.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2019 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

112 Reykjavík
Landnúmer: 186199 → skrá.is
Hnitnúmer: 10068249