breyting á deiliskipulagi
Hlyngerði 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. janúar 2017 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf., mótt. 15. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Espigerðis, reitir 1.806 og 1.807, vegna lóðarinnar nr. 7 við Hlyngerði. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrir útigeymslu milli stoðveggs á lóð og húss, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf., dags. 19. september 2016. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hlyngerði 5 og Furugerði 6 og 8.
Deiliskipulagsbreytingin verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107801 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018887