(fsp) færsla á innkeyrslu
Hádegismóar 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 585
13. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar f.h. Brimborgar ehf., mótt. 14. apríl 2016, varðandi uppbyggingu á lóð nr. 7 við Hádegismóa, samkvæmt teikningum Mansard teiknistofu ehf., dags. 6. apríl 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard Teiknistofu ehf., dags. 14. apríl 2016. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2016.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2016.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá skipulagsfulltrúa vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

110 Reykjavík
Landnúmer: 213067 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116772