breyting á deiliskipulagi
Hlíðarendi 2
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 616
13. janúar, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar, mótt. 23. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 2 við Hlíðarenda. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og aukning á byggingarmagni á reit A, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. , dags. 22. desember 2016. Einnig er lögð fram greinargerð ALARK arkitekta ehf. , dags. 22. desember 2016.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.