breyting á skilmálum deiliskipulags
Hverfisgata 100B og 102
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 628
7. apríl, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lögð fram umsókn Gríms Bjarnasonar, mótt. 17. nóvember 2016, um rekstur gististaðar í húsunum á lóðunum nr. 100B og 102 við Hverfisgötu. Einnig er lagður fram tölvupóstur Gríms Bjarnasonar, dags. 14. febrúar 2017, bréf Gríms Bjarnasonar, dags. 8. mars 2017, bréf Friðriks Ársælssonar f.h. Gríms ljósmyndara ehf., dags. 15. mars 2017 og samþykki eigenda að Hverfisgötu 100B, dags. 15. mars 2017. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. apríl 2017.
Svar

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. apríl 2017, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101584 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022417