Breyta í íbúð - mh.02 3.hæð Líklega breyting á erindi BN058595 - Grenndarkynna þarf br.
Ármúli 38
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 818
30. apríl, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til koma fyrir svölum á mhl. 02 rými 0302 á suðurhlið húss, á lóð nr. 38 við Ármúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 5. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2021. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 40 og Síðumúla 23 og 25.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103833 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006742