(fsp) breytingar á húseign og lóð
Sólvallagata 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 595
28. júlí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að sameina íbúðir hússins, byggja tvo kvisti, nýtt anddyri, útitröppur og svalir á vesturhlið, byggja geymslu á baklóð, breyta innra skipulagi og innrétta einbýlishús á lóð nr. 14 við Sólvallagötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. júní til og með 14. júlí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigríður Magnúsdóttir, dags. 14. júlí 2016. Einnig er lagður fram tölvupóstur Sigríðar Magnúsdóttur, dags. 25. júlí 2016, þar sem athugasemdir eru dregnar til baka.
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 19. apríl 2016. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. maí 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. maí 2016. Stækkun: 23,6 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101158 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019413