Innanhúss breytingar
Lambhagavegur 19
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 577
11. mars, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Helga Hafliðasonar arkitekts f.h. Safari hjól ehf., mótt. 3. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Lambhagalands vegna lóðarinnar nr. 19 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að reitur fyrir íbúðarhús færist fjær aðkomuvegi og verður suðvestantil á lóðinni en byggingarreitur fyrir gróðurhús færist að austurmörkum lóðarinnar. Einnig er kvöð um kaldavatnslagnir sunnan- og austantil á lóð felld út, samkvæmt uppdr. Helga Hafliðasinar arkitekts, dags. 3. mars 2016.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Lambhagaveg 17, 21, 23, 25, 27, 29 og 31.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 r. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.

113 Reykjavík
Landnúmer: 208852 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097321