Innanhúss breytingar
Lambhagavegur 19
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 580
8. apríl, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Hafliðasonar arkitekts f.h. Safari hjóla ehf., mótt. 3. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Lambhagalands vegna lóðarinnar nr. 19 við Lambhagaveg. Í breytingunni felst að reitur fyrir íbúðarhús færist fjær aðkomuvegi og verður suðvestantil á lóðinni en byggingarreitur fyrir gróðurhús færist að austurmörkum lóðarinnar. Einnig er kvöð um kaldavatnslagnir sunnan- og austantil á lóð felld út, samkvæmt uppdr. Helga Hafliðasonar arkitekts, dags. 3. mars 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. apríl til og með 2. maí 2015, en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 7. apríl 2016 er erindi lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

113 Reykjavík
Landnúmer: 208852 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097321