Viðbygging
Skólavörðustígur 31
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 682
25. maí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Kristjáns Chatham Pitt dags. 24. apríl 2018 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 31 við Skólavörðustíg sem felst í að byggja viðbyggingu á baklóð, bæta við inndregnum svölum í risi sem snýr að Skólavörðustíg og bæta við bílastæði á lóð frá Bjarnarstíg, samkvæmt uppdr. DK Pitt ehf. dags. 15. mars 2018. Einnig er lagt fram skuggavarp ódags., umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 15. desember 2015 og lagnateikningar Orkuveitu Reykjavíkur dags. 10. júní 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa 25. maí 2018 samþykkt.