Fjölbýlishús
Skipholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 673
16. mars, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 4. hæð ofaná og 5. hæð yfir hluta húss, sameina í einn matshluta og innrétta gististað í flokki IV, teg. hótel, með 78 herbergjum fyrir 156 gesti, byggja flóttastiga á austasta hluta lóðar, innrétta verslunarrými á 1. hæð austan undirgangs og veitingastað í vesturhluta 1. hæðar verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 1 við Skipholt.
Erindi fylgir greinargerð um bílastæði dags. 6. mars 2018, greinargerð um burðarvirki frá Lotu ódagsett, samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar v/staðsetningar flóttastiga dags. 4. og 5. mars 2018 og greinargerð hönnuðar um breytingar frá fyrra erindi dags. 6. mars 2018.
Jafnframt er erindi BN051113 fellt úr gildi. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.