breyting á deiliskipulagi
Lindargata 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 627
31. mars, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. mars 2017 var lögð fram umsókn Bergs Þorsteinssonar Briem, mótt. 30. janúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóðarinnar nr. 10 við Lindargötu samkvæmt uppdr. Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 29. nóvember 2016. Í breytingunni felst að Lindargata 10 verði gert upp og fært sem næst í upprunalegt horf, ný viðbygging verði byggð milli Lindargötu 10 og Lindargötu 12 og að nýtt lítið hús verði byggt upp að brunagafli Smiðjustígs 12. Einnig er lögð fram greinargerð Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 30. janúar 2017 og bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 1. júlí 2015 og 12. júlí 2016. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101006 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018419