breyting á deiliskipulagi
Lindargata 10
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 645
18. ágúst, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu lögð fram að nýju umsókn Bergs Þorsteinssonar Briem, mótt. 30. janúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóðarinnar nr. 10 við Lindargötu samkvæmt uppdr. Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 29. nóvember 2016, síðast breytt 29. mars 2017. Í breytingunni felst að Lindargata 10 verði gert upp og fært sem næst í upprunalegt horf, ný viðbygging verði byggð milli Lindargötu 10 og Lindargötu 12 og að nýtt lítið hús verði byggt upp að brunagafli Smiðjustígs 12. Einnig er lögð fram greinargerð Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 30. janúar 2017 og bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 1. júlí 2015 og 12. júlí 2016. Tillagan var auglýst frá 9. maí 2017 til 20. júní 2017. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: K 16 R ehf., Silfurberg ehf., Blacksheep.com ehf. og R.R. Hotels ehf., dags. 19. júní 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs

101 Reykjavík
Landnúmer: 101006 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018419