breyting á deiliskipulagi
Efstasund 47
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 550
14. ágúst, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. ágúst 2015 var lögð fram umsókn Árna Gunnars Ingþórssonar mótt. 7. ágúst 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.3 og 1,4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 47 við Efstasund. Í breytingunni felst að stækkunarheimildum er breytt þannig að byggingarreitur til austurs er minnkaður um 3 metra og settur er inn nýr byggingarreitur til suðurs 3 metra frá núverandi húsi. Ef viðbygging verður ein hæð er heimilt að nýta þak hennar fyrir verönd/sólskála, samkvæmt uppdr. Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf. ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Efstasundi 45, 46, 48, 49, 50 og Skipasundi 40, 42 og 44.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104456 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008558