málskot
Rauðarárstígur 1
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 745
27. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram fyrirspurn Ástríks poppkorns slf. dags. 21. ágúst 2019 varðandi breytingu á notkun verslunarrýma á 1 hæð hússins á lóð nr. 1 við Rauðarárstíg í íbúðir (Fnr. 20099593 og F2009594). Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2019. Jafnframt er lagður fram tölvupóstur Ásthildar Björgvinsdóttur og Svavars Þorsteinssonar dags. 9. september 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar skrifstofu sviðstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt tölvupósti skrifstofu sviðstjóra dags. 27. september 2019.
Svar

Afgreitt með vísan til tölvupósts skrifstofu sviðsstjóra dags. 27. september 2019.