(fsp) bílastæði
Kjalarvogur 12
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 578
18. mars, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja byggingavöruverslun, mhl. 01, tveggja hæða skrifstofubygging, steinsteypt, einangruð og klædd að utan með sléttri málmklæðningu og mhl. 02, lagerbygging, stálgrindarhús sem hægt er að aka í gegnum á lóð nr. 12 við Kjalarvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2016.
Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla frá Mannvit dags. 15. febrúar 2016. Mhl. 01, A-rými: 3.186,6 ferm., 15.186,6 rúmm. Mhl. 02, A-rými: 2.543,6 ferm., 20.677,4 rúmm. B-rými: 286 ferm., 1.672 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2016, samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 224159 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116756