breyting á deiliskipulagi
Jöldugróf 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 704
9. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. október 2018 var lögð fram fyrirspurn Arnars Inga Guðmundssonar dags. 3. október 2018 um breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðarinnar nr. 6 við Jöldugróf sem felst í að færa byggingarreit lítillega til vesturs, færa bílskúrinn austan megin á lóðina o.fl., samkvæmt uppdráttum Kristjáns G. Leifssonar dags. 10. maí 2018, 10. júní 2018 og 18. september 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt uppdráttum dags. 5. nóvember 2018 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.