breyting á deiliskipulagi
Jöldugróf 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 718
1. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hildar Gunnarsdóttur dags. 9. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Blesugrófar vegna lóðarinnar nr. 6 við Jöldugróf. Í breytingunni felst að færa byggingarreit bílskúrs á norðausturhluta lóðar og færa byggingarreit húss að hluta til suðvesturs og lítillega til norðausturs, samkvæmt uppdr. Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 11. janúar 2019. desember 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. janúar 2019 til og með 25. febrúar 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.