Einbýlishús / vinnustofa
Fossagata 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 569
15. janúar, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, kjallara, hæð og ris, einangrað að utan og klætt standandi borðaklæðningu á lóð nr. 2 við Fossagötu. Einnig er lagt fram skuggavarp Arkþings í júní og september, ódags. og í ágúst, dags. 6. október 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 24. nóvember til og með 22. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elín Brimdís Einarsdóttir og Gísli Kristinsson, dags. 21. desember 2015, Hrafnhildur Sigurðardóttir, dags. 21. desember 2015 og Hrafnhildur Sigurðardóttir f.h. 99 aðila á undirskriftarlista, dags. 22. desember 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2016 og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2015. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 6. október 2015 og lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. apríl 2014. Stærð A-rými: 216 ferm., 666,2 rúmm. C-rými: 36,9 ferm. Gjald kr. 9.823
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106733 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010596