Fjölbýlishús
Sogavegur 77
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 644
11. ágúst, 2017
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með 26 íbúðum auk bílgeymslu í kjallara á lóð nr. 77 við Sogaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2017.
Stærðir: A-rými 3.676,3 ferm., 12.041,9 rúmm. B-rými 37,9 ferm., 113,7 rúmm. Greinargerð um hljóðvist dags. desember 2016 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017.