breyting á deiliskipulagi
Kjalarvogur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 518
28. nóvember, 2014
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. nóvember 2014 var lagt fram bréf Faxaflóahafna sf. dags. 14. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabakka vegna lóðarinnar nr. 5 við Kjalarvog. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, stækkun á byggingarreit og fækkun bílastæða, samkvæmt uppdr. Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf. ódags. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna sf. dags. 25. nóvember 2014. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brúarvogi 1-3, Kjalarvogi 7-15 og Skútuvogi 7-9.

104 Reykjavík
Landnúmer: 178219 → skrá.is
Hnitnúmer: 10074854