Grensásvegur 16C - Mhl.04 (Bílageymsla)
Grensásvegur 16A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Kristjáns Ásgeirssonar mótt. 4. september 2015 um að byggja við og breyta nýtingu núverandi húsnæðis. Húsnæðið verður nýtt fyrir íbúðir, hótel, skrifstofu og þjónustustarfsemi. Gert er ráð fyrir að rífa núverandi bílgeymsluhús og rampa og byggja nýtt tveggja hæða bílgeymsluhús auk tveggja íbúðarhæða þar ofan á með þakgarði, hækka Grensásveg 16A um tvær hæðir og endurinnrétta sem hótel, hækka Síðumúla 39 um eina hæð og innrétta íbúðir á eftir hæðum Síðumúla 37 og 39, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf. dags. 28. ágúst 2015. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 16. september 2015.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2015 samþykkt.