breyting á deiliskipulagi
Bergstaðastræti 10B
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 558
16. október, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2014 var lögð fram umsókn Magnúsar Jenssonar dags. 5. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.180.2 vegna lóðarinnar nr. 10B við Bergstaðastræti. Í breytingunni felst að byggja millibyggingu og breyting á lóðarmörkum, samkvæmt uppdr. Magnúsar Jenssonar dags. 5. október 2014. Erindinu var frestað þar sem samþykki eiganda að Bergstaðastræti 12 og 12A þurfa að liggja fyrir breytingunni og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lagt fram bréf til umsækjanda dags. 16. október 2015.
Svar

Bréf til umsækjanda, dags. 16. október 2015, lagt fram.