30 - Bíla- og hjólageymsla
Blönduhlíð 28-30
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 679
4. maí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta hjóla- og bílageymslu ásamt því að steypa 30 cm háan stoðvegg meðfram lóðarmörkum að götu við hús á lóð nr. 30 við Blönduhlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 16. apríl 2018 til og með 14. maí 2018 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 2. maí 2018 er erindi nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 5. mars 2018, samþykki lóðarhafa Blönduhlíðar 28 ódagsett og umsögn SRU dags. 22. mars 2018. Stærð: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107242 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008348