breyting á deiliskiplagi
Bergþórugata 14A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 528
20. febrúar, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Odds Guðjóns Péturssonar dags. 8. janúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 14A við Bergþórugötu. Í breytingunni felst enduruppbygging þaks með hækkun mænis, byggingu kvista á norður- og suðurhlið hússins ásamt byggingu svala á suðurhlið, samkvæmt uppdr. Krads ehf. dags. 9. janúar 2015. Einnig er lagt fram Skuggavarp Krads ehf. dags. 9. janúar 2015 og samþykki meðlóðarhafa ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. janúar 2015 til og með 13. febrúar 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.