Viðbygging við frystivélahús við mhl. 05 og nýr mhl. 08
Norðurgarður 1 og Grandagarður 20
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 506
28. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna dags. 14. maí 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 1 við Norðurgarð og 20 við Grandagarð. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, stækkun byggingarreita, að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir sorpflokkunarstöð o.fl., samkvæmt uppdr. Teiknistofu Gylfa Guðjónssonar og Félaga ehf. dags. 8.maí 2014. Tillagan var auglýst frá 14. júlí til og með 25. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar