Breyting á (50133) úr flokki I í II
Ægisíða 123
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 578
18. mars, 2016
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta veitingaflokki úr I í II í nýsamþykktu veitingahúsi á lóð nr. 123 við Ægisíðu. Erindi var grenndarkynnt frá 19. febrúar til og með 18. mars 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sara McMahon, dags. 17. mars 2016, Anna Jóna Heimisdóttir og Þórir Karl Bragason Celin, mótt. 18. mars 2016 , Halldóra Ásgeirsdóttir, dags. 18. mars 2016 og Aðalheiður Ósk Guðbjörnsdóttir og Örn Valdimarsson, dags. 18. mars 2016. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jens Þórs Svanssonar, dags. 17. mars 2016, þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdafresti.
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdafrest til og með 29. mars 2016.