Sameina eignir - reyndart.
Skeggjagata 3
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 488
25. apríl, 2014
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. apríl 2014 þar sem sótt er um samþykki fyrir núverandi innra fyrirkomulagi og leyfi til þess að sameina tvær íbúðareignir í eina eign og byggja svalir á austurhlið annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 3 við Skeggjagötu. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2014.
Einn eigandi er að húsinu. Ný skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skeggjagötu 1 og 5 og Mánagötu 4 og 6.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103152 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016004