Stækka kvisti
Miklabraut 70
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 487
11. apríl, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. apríl 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að stækka þrjá kvisti á norðurhlið, stækka þrjá kvisti og koma fyrir svölum á einum af þeim á suðurhlið og fá að breyta risi í íbúð á lóð nr. 70 Miklabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2014.
Íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 12. nóvember 2002 fylgir erindinu.
Svar

Ekki gerð athugasemd við fyrirspurnina, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags 10. apríl 2014.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107117 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022486