breyting á deiliskipulagi
Klettagarðar 11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 486
4. apríl, 2014
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. mars 2014 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 21. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 11 við Klettagarða. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. Ask arkitekta ehf. dags. 12. mars 2014. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 9 og 13.

104 Reykjavík
Landnúmer: 172573 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058928