(fsp) Fjölgun bílastæða
Bugðulækur 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr plastkubbum frá Varmamót með 150 mm steypukjarna, múrhúðað að utan og innan með loftuðu, sléttu, pappaklæddu timburþaki á lóð nr. 6 við Bugðulæk. Erindi var grenndarkynnt frá 10. ágúst til og með 7. september 2015. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð. dags. 10. júlí 2014 og samþykki eigenda á Bugðulæk 8, dags. 13. júlí 2014.
Stærð: 38,7 ferm., 134,9 rúmm.
Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104034 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008036