Stækka viðbyggingu
Suðurgata 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 633
26. maí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. febrúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051178, svalir eru færðar á suðausturhorn og gerðar dyr úr stofu einbýlishúss á lóð nr. 29 við Suðurgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. mars 2017. Erindi var grenndarkynnt frá 24. apríl 2017 til og með 22. maí 2017. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 31. janúar 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100929 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021968