Stækka viðbyggingu
Suðurgata 29
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 599
26. ágúst, 2016
Samþykkt
‹ 431163
429247
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. júlí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja anddyrisbyggingu úr bárujárnsklæddu timbri á steyptum undirstöðum, samanber erindi BN047212, við norðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 29 við Suðurgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 26. júlí 2016 til og með 23. ágúst 2016. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 28.6. 2016. Stækkun: 20,8 ferm., 168,3 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100929 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021968