Breyta atvinnuhúsnæði í 3 íbúðir (bakhús)
Grettisgata 50
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Huldu Kristínar Guðmundsdóttur dags. 2. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.1, vegna lóðanna nr. 50 og 50B við Grettisgötu. Í breytingunni felst m.a. að allar niðurrifsheimildir eru felldar niður og lóðirnar sameinaðar. Við sameiningu lóða er kvöð um aðgengi að Grettisgötu 50B felld niður, samkvæmt uppdr. Arkitekta Hjördís og Dennis dags. 2. október 2018.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Grettisgötu 48, 48B, 52 og Njálsgötu 49, 51B og 53 - 57.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102381 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011617